Vígsla og opið hús

Föstudaginn 25. ágúst klukkan 14:00-16:00 ætlum við að fagna opnun Öldunnar.

Dagskrá :

14:00

Anton Kári Halldórsson sveitastjóri, Sólbjört Sigríður Gestsdóttir skólastjóri Öldunnar og Sigríður K. Viðarsdóttir, formaður Fjölskyldunefndar, ávarpa gesti.

14:30

Sirkus Íslands verður með stutta sýningu á útisvæði

Vegna vígslunnar verður gatan Æskuslóð lokuð en gestum er bent á að hægt er að leggja við Hvolsskóla, Íþróttamiðstöðina og á bílastæðinu við Lava.

Opið hús fyrir alla sem langar að skoða nýju bygginguna.

 

Vonumst til að sjá sem flesta