Lausar lóðir til úthlutunar í Rangárþingi eystra

Rangárþing eystra auglýsir hér með eftirfarandi lóðir á Hvolsvelli og Ytri-Skógum, lausar til úthlutunar. Meðal annars eru auglýstar fyrstu lóðir í Hallgerðartúni, sem er nýtt íbúðahverfi á Hvolsvelli.

Hallgerðartún, Hvolsvelli: 14 lóðir undir einbýlishús

Hvolstún 21, Hvolsvelli: 1 lóð undir einbýlishús

Vistarvegur 2-4, Ytri-Skógum: 1 lóð undir parhús

Vistarvegur 3, Ytri-Skógum: 1 lóð undir einbýlishús

Skólavegur 5, Ytri-Skógum: 1 lóð undir einbýlishús

Ormsvöllur 9, 11, 15 og 17 undir iðnaðar- og athafnastarfsemi.

Umsóknareyðublað, nánari upplýsingar um lóðirnar og skipulagsskilmála má nálgast á heimasíðu Rangárþings eystra www.hvolsvollur.is og á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa, Austurvegi 4, Hvolsvelli.

Við úthlutun lóðanna verður farið eftir úthlutunarreglum lóða í Rangárþingi eystra. Umsóknarfrestur er til 21. mars 2021.

Umsóknum skal skilað á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa eða á netfangið bygg@hvolsvollur.is.

 

F.h. Rangárþings eystra

Guðmundur Úlfar Gíslason

Skipulags- og byggingarfulltrúi

 

Auglýsing um lóðaúthlutanir í Rangárþingi eystra

Rangárþing eystra auglýsir hér með eftirfarandi lóðir á Hvolsvelli, lausar til úthlutunar.

 

Gunnarsgerði 9 undir byggingu einbýlishúss

Hvolstún 21 og 25 undir byggingu einbýlishúsa

Nýbýlavegur 12 og 14 undir byggingu parhúsa

 

Umsóknareyðublað, nánari upplýsingar um lóðirnar og skipulagsskilmála má nálgast á heimasíðu Rangárþings eystra www.hvolsvollur.is og á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa, Austurvegi 4, Hvolsvelli, bygg@hvolsvollur.is

Við úthlutun lóðanna verður farið eftir úthlutunarreglum lóða í Rangárþingi eystra. Umsóknarfrestur er til 31. janúar 2019. Umsóknum skal skilað á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa eða á netfangið bygg@hvolsvollur.is.

 

F.h. Rangárþings eystra

Guðmundur Úlfar Gíslason

Skipulags- og byggingarfulltrúi