Tónlistarskóli Rangæinga sem starfar samkvæmt lögum um tónlistarskóla, er rekinn af byggðasamlagi, Tónlistarskóli Ranæginga bs., og taka öll sveitarfélög sýslunnar þátt í rekstri hans. Skólinn nær yfir mjög stórt dreifbýlt svæði og tekur starfsemi og rekstur skólans óhjákvæmilega mið af því að vegalengdir eru miklar bæði fyrir nemendur og kennara. Með starfrækslu öflugs tónlistarskóla er öllum íbúum gefin kostur á því að stunda hljóðfæranám.

Við skólann stunda að jafnaði 280 nemendur nám. Þar með eru taldir forskólanemendur leikskóla og forskóli grunnskóla.

Skólastjóri: Sandra Rún Jónsdóttir
Netfang: tonrang@tonrang.is
Heimasíða: http://tonrang.is
Sími á Hvolsvelli: 488 4280

Skóladagatal Tónlistarskóla Rangæinga

Skóladagatal 2023 - 2024