Nýsköpunarmiðstöð Íslands býður upp á 38 stunda námskeið þar sem farið er í rekstur fyrirtækja með áherslu á þróun hugmynda, markaðssetningu, stjórnun og fjármál. Þátttakendur vinna með eigin viðskiptahugmyndir eða breytingar í starfandi fyrirtækjum. Unnið er í samstarfi við atvinnuþróunarfélög og aðra aðila úr stoðkerfi atvinnulífsins á viðkomandi svæði. Námskeiðið er ætlað öllum, óháð eðli viðskiptahugmynda, atvinnugreina eða reynslu þátttakenda á sviði atvinnurekstrar. 

Kennt er að mestu leyti í gegnum tölvur, reiknað er með 17 skiptum í 2-3 tíma í senn. Þátttakendur sitja við tölvur þar sem þeir eru staddir, sjá fræðsluefni á skjánum og eru í stöðugu símasambandi við kennara, geta spurt og tekið þátt í umræðum. Einnig má safnast saman á fræðasetrum svæðisins, Kötlusetri, Kirkjubæjarstofu eða í Fræðslunetinu á Hvolsvelli. Fyrirlestrarnir verða teknir upp svo hægt verður að horfa á fyrirlesturinn síðar, en þátttakendur eru hvattir til að fylgjast með í beinni útsendingu til að geta tekið þátt í umræðum. 

Kynningarfundur um námskeiðið verður haldinn miðvikudaginn 29. janúar á þremur stöðum innan jarðvangsins, í Fræðslunetinu á Hvolsvelli kl 12.00, Kötlusetri í Vík kl 16.00 og á Kirkjubæjarstofu á Klaustri kl 20.45. Allir eru velkomnir á kynningarfundinn sér að kostnaðarlausu, hægt verður að skrá sig á námskeiðið á staðnum eða hjá Fræðslunetinu í síma 560 2030 eða í tölvupósti steinunnosk@fraedslunet.is
Verð á námskeiðið aðeins 18.000 kr. 
Nánari upplýsingar fást hjá Rannveigu í síma 857 0634 og rannveig@katlageopark.is. Ítarlegri dagskrá og tímasetningar er að finna á heimasíðu Fræðslunetsins www.fraedslunet.is.
Vonumst til að sem flestir íbúar jarðvangsins nýti sér þetta frábæra tækifæri til að koma hugmyndum sínum af stað eða þróa núverandi rekstur með aðstoð færustu sérfræðinga.


Sjá nánar: Vaxtasprotar í Kötlu jarðvangi