Þessi skemmtilegi spýtukarl var sestur að fyrir framan skrifstofu sveitarfélagsins einn morguninn þegar starfsmenn komu til vinnu. Þessi þorrakall er víst eitthvað tengdur Króktúnsbúum sem nú eru í óða önn að undirbúa þorrablót Hvolhreppinga. Karlinn var þó horfin í morgun en það fréttist af honum fyrir utan dvalar- og hjúkrunarheimilið Kirkjuhvol og má því ætla að hann gerist víðförull fyrir blótið sem verður 1. febrúar nk. í Hvolnum, Hvolsvelli.