Framundan er tími þorrablóta og í sveitarfélaginu eru haldin hvorki meira né minna en 6 þorrablót í hinum gömlu hreppum. Börn og starfsfólk í Leikskólanum Örk láta ekki sitt eftir liggja og halda árlega þorrablót. Börnin föndra sér víkingahjálma og bera þá vígaleg við matarborðið meðan þau smakka á dýrindis þorramat.