Rangárþing eystra og Sjónvarpsstöðin N4 hafa gert samning sín á milli um að sveitarfélagið taki þátt í gerð sjónvarpsþáttanna Að sunnan. Ásthildur Ómarsdóttir, stjórnandi þáttanna, hefur verið á ferð um Rangárþing eystra ásamt myndatökumanni sínum og nú þegar hafa fjögur innslög úr sveitarfélaginu verið sýnd á N4. Það er gaman að fylgjast með því sem er um að vera í okkar landsfjórðungi og þá sérstaklega hjá okkar heimafólki.

Heimsókn til eldri borgara í Hvolinn á Hvolsvelli

Viðtal við Helgu Ingadóttur í Eldstó

Fjallganga og moltugerð í Hvolsskóla

Hjálmar Ólafsson útskurðarmaður