Héraðsnefnd Rangæinga og Héraðsskjalasafn Árnesinga hafa gert samkomulag um að Héraðsskjalasafnið skanni myndasafn Ottós Eyfjörð Ólasonar.  Ottó var áhugaljósmyndari og skildi eftir sig mikið safn merkilegra mynda sem teknar voru við ýmis tækifræi í Rangárvallasýslu. Hér er um merkilegar sögulegar heimildir að ræða. Skannaðar verða um 20.000 myndir  og verður verkinu lokið í lok árs 2016. Hluti safnsins er inná heimasíðu Héraðsskjalasafnsins. 

Á myndinni eru þeir Þorsteinn Tryggvi Másson forstöðumaður Héraðsskjalasafns Árnesinga  og Ísólfur Gylfi Pálmason fulltrúi Héraðsnefndar Rangæinga. Hluti af myndasafninu má finna á heimasíðu héraðsskjalasafnsins.