Rangárþing eystra hefur verið valið í verkefni á vegum Sambands íslenskra sveitarfélaga um kostnaðarmat vegna úrgangsstjórnunar sveitarfélaga.

Auglýst var var eftir áhugasömum sveitarfélögum til þátttöku í verkefnið í nóvember sl. og bárust alls 22 umsóknir frá breiðum og fjölbreyttum hópi sveitarfélaga. Eftir yfirferð á umsóknum, með teknu tilliti til þeirra valforsendna sem lágu fyrir í upphafi, var ákveðið að velja sveitarfélögin Rangárþing eystra, Garðabæ, Ísafjörð, Skagafjörð og Suðurnesjabæ.

Valforsendurnar sem horft var til við val á sveitarfélögum voru eftirfarandi:

  • Staða gagnvart innleiðingu nýrra lagakrafna 
  • Svigrúm til að leggja fram vinnu til verkefnisins
  • Aðgengi að upplýsingum 
  • Rekstrarform á þjónustu
  • Dreifing yfir landið, m.t.t. til stærðar, staðsetningar, dreifbýli eða þéttbýli eða hvoru tveggja 

Markmið verkefnisins er að ná betri yfirsýn yfir kostnað og tekjur sveitarfélaga í málaflokknum og hvernig þróun útgjalda og tekna hefur verið síðastliðin ár. Að auki er talið að sveitarfélögin búi yfir þeim upplýsingum sem þarf til að ná fram markmiðum verkefnisins og bolmagni til að miðla þeim áfram til sambandsins og ráðgjafa þess. Jafnframt er talið að þessi hópur sveitarfélaga endurspegli vel mismunandi stöðu sveitarfélaga m.t.t. stærðar, staðsetningar, rekstrarforms í málaflokknum og annarra þátta sem horft er til.   

Verkefnið er í tveimur áföngum og ráðgert er að hefja verkefnið í janúar 2024. Samband íslenskra sveitarfélaga leiðir verkefnið með aðstoð tveggja ráðgjafa, annars vegar Pure North og hins vegar HLH ráðgjöf, sem munu vinna greiningarvinnuna og setja fram niðurstöður verkefnisins.

Niðurstöður fyrri hluta verkefnisins munu liggja fyrir í febrúar/mars og niðurstöður seinni hluta liggi fyrir í júní.