Félag aðstandenda heimilisfólks á Kirkjuhvoli hélt aðalfund sinn laugardaginn 16. mars. Eftir fundinn var kaffi vegna 1 árs afmælis félagsins. Stefán Helgi Stefánsson, tenór, kom og söng fyrir hópinn og höfðu allir gaman að. Meðfylgjandi eru nokkrar myndir sem teknar voru þennan skemmtilega dag.