Jarðvangsvikan í Kötlu jarðvangi verður haldin í þriðja sinn dagana 21. - 27. apríl. Búið er að skipuleggja góða dagskrá í því tilefni og má þar nefna ýmsar gönguferðir, m.a. um Kirkjubæjaklaustur, gönguferð um Hafursey í Mýrdal, gengið verður á Lómagnúp og í Rangárþingi eystra er ganga og leiðsögn um landnám Stórólfshvols og ganga á Þríhyrning. Opinn landbúnaður verður í Ásólfsskála, tónleikar með Mono Town á Icelandair Hótel Klaustri og ferð á Njáluslóðir með leiðsögn.

Hér má sjá dagskrána í heild: Jarðvangsvika 2014