Fyrir hjálpsemi og lán á búnaði færði Umhverfisnenfnd Hvolsskóla Björgunarsveitinni Dagrenningu á Hvolsvelli kr. 100.000 að gjöf sem þakklætisvott fyrir veitta aðstoð við jökulmælingar á Sólheimjökli undanfarin ár. Fjárhæðin var hluti samfélagsstyrks sem Hvolsskóla hlotnaðist nýlega frá Landsbanka Íslands vegna mælinga á Sólheimajökli.