- Visit Hvolsvöllur
- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
Þeir Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Íslandspósts og Hörður Jónsson, framkvæmdastjóri pósthúsasviðs Íslandspósts, heimsóttu sveitarstjórnarfund í gær, fimmtudaginn 9. janúar og ræddu um sjónarmið sveitarstjórnar varðandi póstþjónustu í dreifbýli sveitarfélagsins.
Haukur G. Kristjánsson, oddviti, tók það skýrt fram strax í byrjun umræðna að gagnrýni sveitarstjórnarinnar beindist á engan hátt gegn traustu og áreiðanlegu starfsfólki Íslandspósts á Hvolsvelli.