Helgina 13. – 15. október 2023 fór fram fyrri hluti Íslandsmóts skákfélaga og var mótið haldið í Rimaskóla í Reykjavík.

Íþróttafélagið Dímon tekur nú þátt í þriðja sinn og sendi til leiks tvær skáksveitir í 4. deild Íslandsmótsins.

Báðar sveitir stóðu sig frábærlega. Dímon A er í 1. sæti eftir fyrri hlutann með 23 vinninga af 24 mögulegum og Dímon B er í 5. sæti með 14 vinninga af 24 mögulegum. Báðar sveitir eru því í góðri stöðu fyrir seinni hluta Íslandsmótsins sem haldið verður í apríl og verður spennandi að fylgjast með gangi mála. Telja má nánast öruggt nú þegar að Dímon A fari upp úr 4. deildinni eftir úrslit fyrri hlutans.

Skáksveit Dímon A skipa: Magnús Pálmar Örnólfsson, Guðmundur Daðason, Stefán Arnalds, Árni Böðvarsson, Unnsteinn Sigurjónsson, Magnús Sigurjónsson og Óskar Víkingur Daðason.

Skáksveit Dímon B skipa: Egill Steinar Ágústsson, Anton Vignir Guðjónsson, Brynjar Bjarkason, Baldur Hannesson, Þorlákur Ragnar Sveinsson, Markús Árni Vernharðsson, Birgir Logi Steinþórsson, Helgi Svanberg Jónsson, Óttar Örn Bergmann Sigfússon, Reynir Björgvinsson, Bjarni Daníelsson og Ólafur Elí Magnússon.

Öll einstök úrslit má sjá hér: https://chess-results.com/tnr823364.aspx?lan=1&art=0