Sveitarstjórn Rangárþings eystra bókaði eftirfarandi ályktun á fundi sínum 11. maí


Sveitarstjórn Rangárþings eystra harmar þá afvegaleiddu umræðu sem fram hefur farið vegna deiliskipulags við Seljalandsfoss. Sveitarstjórn bendir á að allar upplýsingar um tillögurnar og umsagnir eru á heimasíðu sveitarfélagsins hvolsvollur.is. Mikils er um vert að geta gengið frá sameiginlegu bílastæði fyrir svæðið og draga bifreiðaumferð sem lengst frá fossunum Seljalandsfossi og Gljúfrabúa og færa þjóðveginn sem liggur í Dals- og  Merkurhverfi og til Þórsmerkur þannig að greiðafærara verði á svæðinu.   Deiliskipulagstillagan er nú til yfirferðar hjá Skipulagsstofnun.