Styrkur upp á 10 milljónir króna hefur fengist frá forsætisráðuneytinu til varðveislu menningarminja í Múlakoti í Fljótshlíð. Um er að ræða bæjarhúsin sem risu árin 1897 – 1946, rústir fjóss, hesthúss og hlöðu, lystigarð Guðbjargar Þorleifsdóttur og lysthús auk annarra rústa sem kunna að tilheyra bænum. Minjastofnun Íslands hefur unnið að þessu verkefni. Eigendur húsanna, þau Stefán Guðbergsson og Sigríðar Hjartar vilja afsala sér þessum eignum þannig að opinberir aðilar geti komið að verkefninu.

Fyrirhugað er að stofna félag eða sjálfseignarstofnun um varðveislu staðarins.  Rangárþing eystra og Byggðasafnið í Skógum ættu aðild að því en munu  ekki leggja fé til verkefnisins heldur vera hluti af bakhjörlum þess. Því félagi eða stofnun myndu eigendur Múlakots afhenda viðkomandi fasteignir án endurgjalds með því markmiði að varðveita menningarminjar og minjalandslag svæðisins. Hugsanlegt er að Minjarvernd komi einnig að þessu verkefni.

Með styrk sem þessum frá forsætisráðuneytinu gefst tækifæri til að hefja enduruppbyggingu þessara menningarminja, halda við minjum er tengjast menningarsögu sveitarfélagsins og nýtist verkefnið í þágu samfélagsins til eflingar menningartengdar ferðaþjónustu í héraði.