Þessa dagana standa SASS – Samtök sunnlenskra sveitarfélaga, ásamt Markaðsstofu Suðurlands, fyrir viðhorfskönnun á meðal Sunnlendinga um gjaldtöku á ferðamannastöðum.

Þessi umræða er m.a. í gangi á Alþingi og í ráðuneyti ferðamála og á mikið erindi við Sunnlendinga enda er Suðurland eitt fjölsóttasta ferðamannasvæði landsins. Það skiptir verulega máli fyrir landshlutann að afrakstur gjaldtökunnar muni skila sér í auknum fjármunum til uppbyggingar og verndunar á ferðamannastöðum á Suðurlandi.
Það er tímabært að rödd okkar Sunnlendinga heyrist.
Þess vegna hefur verið ákveðið að kanna viðhorf Sunnlendinga /sunnlenskra ferðaþjónustuaðila til gjaldtöku á ferðamannastöðum.
Hvetjum ykkur til að nýta tækifærið og taka þátt í könnuninni hér fyrir
neðan:


https://www.surveymonkey.com/s/HR8SHNQ


Takk fyrir þátttökuna!