Rangárþing eystra óskar eftir tilboðum í verkið "Bílastæði við Skógafoss"

Verkið felur í sér gerð á bílastæðum með malbiki, plastgrindum, yfirborðsfrágangi og lagningu fráveitulagnar að framtíðar hreinsistöð fyrir byggðina á Skógum.

Helstu magntölur eru:

Malbik 7575 m²

Plastgrindur 3540 m²

Þökulögn 1900 m²

Grúsarfylling 8200 m³

Gröftur 4700 m³

Gröftur lagnaskurða fyrir fráveitulagnir 700 m3

Fráveitulagnir 213 m

 

Verkinu skal að fullu lokið 15. september 2024.

Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi frá og með þriðjudeginum 6. febrúar 2024. Þeir sem hyggjast gera tilboð í verkið skulu hafa samband við Þóru Björg Ragnarsdóttir fulltrúa skipulags- og byggingasviðs Rangárþings eystra með tölvupósti í netfangið thorabjorg@hvolsvollur.is og gefa upp nafn, heimilisfang, síma og netfang og fá í kjölfarið útboðsgögnin send í tölvupósti.

Tilboðum skal skila á skrifstofu Rangárþings eystra, Austurvegi 4, 860 Hvolsvöllur fyrir kl. 11.00 fimmtudaginn 22. febrúar 2024 og verða þau opnuð þar að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.

 

Þóra Björg Ragnarsdóttir

Fulltrúi Skipulags- og byggingarsviðs Rangárþings eystra