Dagana 20. – 22. mars s.l. var ungmennaráðstefnan „Ungt fólk og lýðræði“ haldin á Egilstöðum.  Um 65 ungmenni og starfsmenn víðs vegar að af landinu sóttu ráðstefnuna og voru þar á meðal 3 fulltrúar úr Ungmennaráði Rangárþingi eystra.  Það voru þau  Fanney Úlfarsdóttir, Jón Sigurðsson og Sigurður Borgar Ólafsson.  Þetta var í fjórða sinn sem ráðstefnan Ungt fólk og lýðræði er haldin og var þemað að þessu sinni ungt fólk og skipulag.  Á ráðstefnunni voru haldnir ýmsir fyrirlestrar og í framhaldi af þeim unnið í vinnustofum þar sem niðurstöður þeirra voru svo kynntar í lok ráðstefnunnar.  Í ályktun ráðstefnunnar er skorað  á íslensk stjórnvöld, jafnt ríki sem sveitarfélög að leita meira til ungmenna og taka tillit til þeirra skoðana á málefnum samfélagsins, einkum þau sem varða ungmennin sjálf.  Bestu málsvarar ungmenna eru ungmennin sjálf.  Fulltrúar Rangárþings eystra voru sammála um að ráðstefnan hafi verið mjög fróðleg og skemmtileg.  Þar lærðum við heilmikið um réttindi barna og ungmenna í samfélaginu og mikilvægi þess að raddir okkar fái að heyrast.  Við teljum að reynsla okkar af ráðstefnunni geti nýst  heilmikið í áframhaldandi vinnu  í ungmennaráði Rangárþings eystra.

fh.Ungmennaráðs Rangárþings eystra

Fanney Úlfarsdóttir

 

hér má sjá ályktun ráðstefnunnar í heild sinni http://umfi.is/?cat_id=67475&ew_0_a_id=399077