Sameiginleg umsögn Rangárþings ytra, Rangárþings eystra og Skaftárhrepps við tillögu að Landsskipulagsstefnu 2015 – 2026.

Sveitarstjórnir sveitarfélaganna samþykktu á fundum sínum, Rangárþing ytra 11. febrúar 2015, Rangárþing eystra 12. febrúar 2015 og Skaftárhreppur 12. febrúar, að senda inn eftirfarandi sameiginlega umsögn við tillögu að Landsskipulagsstefnu 2015-2026. 

Sveitarfélögin Rangárþing eystra, Rangárþing ytra og Skaftárhreppur vilja koma eftirfarandi ábendingum á framfæri vegna tillögu að Landsskipulagsstefnu 2015-2026 sem er til kynningar:


Sveitarfélögin vilja ítreka nauðsyn þess að framlögð gögn varðandi rammaskipulag Suðurhálendis, sem staðfest var af tilteknum sveitarfélögum í mars árið 2014, verði innleidd í stefnumarkandi umræður um miðhálendið og gerir athugasemdir við að það skyldi ekki hafa verið gert á fyrri stigum ferilsins við gerð tillögu að landsskipulagsstefnu. Benda má á að skv. 11. gr. skipulagslaga nr.123/2010 „skal Skipulagsstofnun hafa samráð við þau sveitarfélög sem kunna að þurfa að gera breytingar á skipulagsáætlunum sínum vegna landsskipulagsstefnunnar“ Það skal tekið fram að stefna rammaskipulags fyrir Suðurhálendið var grundvöllur áformaðra breytinga á aðalskipulagi tiltekinna sveitarfélaga. Afar lítið virðist hafa verið tekið tillit til áherslna í framlagðri stefnu um Suðurhálendið en ákveðið frekar að færa áherslur gildandi Svæðisskipulags Miðhálendisins yfir í Landsskipulagsstefnuna, vitandi þó, að áherslur í Svæðisskipulagi Miðhálendisins eru frekar orðnar úr sér gengnar sökum breyttra forsendna á hálendinu og að litlar sem engar breytingar hafa verið gerðar á Svæðisskipulagi Miðhálendisins síðan það öðlaðist fyrst gildi. Einnig vilja sveitarfélögin vekja athygli á því að skv. 10. gr. skipulagslaga „Þá skal eftir því sem við á hafa svæðis- og aðalskipulagsáætlanir sveitarfélaga til hliðsjónar“ við vinnslu Landsskipulagsstefnu. Ekki verður séð á tillögunni með hvaða hætti eða hvort yfir höfuð það hafi verið gert við vinnslu hennar. 
  
Sveitarfélögin benda á nauðsyn þess að tillit sé tekið til nýtingar eignarréttar þeirra sem eiga beitarrétt og/eða veiðirétt á hálendinu á grundvelli úrskurða Óbyggðanefndar.

Sveitarfélögin geta ekki unað því að Landgræðsla ríkisins verði leiðandi afl í Landsskipulagsstefnu og að áætlanir slíkra stofnana verði bindandi fyrir sveitarfélögin í ákvarðanatöku um landnýtingu. Bent er á, að nú þegar liggja fyrir  samningar á milli bænda, landeigenda og annarra hagsmunaaðila við sveitarfélögin um verndun og nýtingu til að tryggð sé sjálfbærni til framtíðar. 

Sveitarfélögin vilja benda á að stefna um nýtingu annars vegar og verndun hins vegar þarf ekki að aðskilja og vinna í sitt hvoru lagi. Verndun og nýting geta alfarið virkað saman og oftar en ekki hefur nýtingin verið besta verndunin þegar upp hefur verið staðið. 

Varðandi áform um frekari flokkun landbúnaðarsvæða vilja sveitarfélögin benda á að nú þegar liggja fyrir margar skýrslur um slíkt, þar sem sveitarfélög, þar með talið Rangárþing eystra, hafa ákveðið skiptingu landbúnaðarsvæða í sínu skipulagi. Haft skuli samráð um tillögur til frekari flokkunar áður en öll vinnan sem unnin hefur verið og allt það fjármagn sem veitt hefur verið í flokkun svæða, verði eyðilagt. 

Sveitarfélögin vilja benda á að leiðandi stefna um þéttleika byggðar í dreifbýli hafi afar íþyngjandi áhrif á möguleika einstakra sveitarfélaga til að þróast og dafna. Það þurfi alfarið að vera í valdi hvers sveitarfélags að ákveða sína staði til uppbyggingar á þjónustu og búsetu. Mikil lífsgæði geta verið fólgin í búsetu í dreifbýli og í mörgum tilfellum er það ekki íþyngjandi fyrir rekstur sveitarfélagana og býður upp á mikinn fjölbreytileika.   

Sveitarfélögin taka heilshugar undir þær athugasemdir sem koma fram í umsögn Sambands Íslenskra sveitarfélaga um Landsskipulagsstefnu dags. 29. janúar 2015.

F.h. Rangárþings eystra, Rangárþings ytra og Skaftárhrepp

Anton Kári Halldórsson