Rangárþing eystra óskar eftir að ráða jákvæðan og drífandi einstakling í starf umhverfis- og garðyrkjustjóra sveitarfélagsins.
 
Um fjölbreytt framtíðarstarf er að ræða sem krefst góðrar færni og útsjónarsemi við að viðhalda fögru umhverfi í sveitarfélaginu.
 
Helstu verkefni:
 
  • Ábyrgð á fagurri ásýnd umhverfis í sveitarfélaginu öllu með gróðri, stígagerð, lýsingu og ásýnd mannvirkja.
  • Ábyrgð og forgangsröðun verkefna á opnum svæðum, leikvöllum og öðrum lendum sveitarfélagsins.
  • Umsjón með verkefnum tengdum náttúru og uppbyggingu ferðamannastaða.
  • Gerð áætlana og eftirfylgni framkvæmda.
  • Aðkoma að stefnumótun umhverfismála og skipulagsmála sveitarfélagsins.
  • Ábyrgð á vinnuskóla Rangárþings eystra, skipulagi, utanumhaldi og forgangsröðun verkefna.

Menntun, reynslu og hæfniskröfur:

  • Skrúðgarðyrkjufræðingur og/eða önnur garðyrkjumenntun eða sambærileg menntun æskileg.
  • Góð almenn tölvukunnátta.
  • Frumkvæði og sveigjanleiki.
  • Jákvæðni í starfi og sjálfstæði í vinnubrögðum ásamt því að eiga auðvelt með að vinna í hópi.
  • Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af stjórnunarstörfum og stjórnsýslu.
Leitað er eftir öflugum og skapandi einstaklingi sem hefur áhuga á því að leggja sitt af mörkum við uppbyggingu öflugs og ört vaxandi samfélags, þar sem eru til staðar margar af fegurstu náttúruperlum landsins.
 
Umsóknarfrestur er til og með 22. apríl 2024. Umsókn skal send á netfangið hvolsvollur@hvolsvollur.is og þarf henni að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi í starfið. Umsóknir gilda í sex mánuði frá dagsetningu auglýsingar. Öll áhugasöm eru hvött til að sækja um starfið. Laun eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi
stéttarfélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar um starfið veita Anton Kári Halldórsson, sveitarstjóri (anton@hvolsvollur.is) og Þóra Björg Ragnarsdóttir, skipulags- og byggingarfulltrúi (thorabjorg@hvolsvollur.is) í síma 488-4200.