Eins og flestir vita hefur sveitarstjórn Rangárþings eystra ákveðið að sveitarfélagið mun taka á móti flóttafólki frá Úkraínu. 

Nú þegar eru tvær fjölskyldur komnar til okkar, tvær konur með samtals þrjú börn en þau eiga fjölskyldutengsl hér. Þau hafa komið sér vel fyrir í húsnæði á Hvolsvelli sem íbúar á svæðinu buðu til afnota, börnin byrja brátt í skóla og fjölskyldurnar eru að aðlagast lífinu hér hægt og rólega. Fjölskyldurnar eru boðnar hjartanlega velkomnar.

Það má með sanni segja að íbúar hafi brugðist vel við þegar auglýst var eftir húsnæði, aðföngum og/eða annars konar aðstoð fyrir flóttafólk og fjölmargir höfðu samband. Sveitarfélagið þakkar kærlega fyrir þessi viðbrögð.