Þann 17. janúar 2014 verða leiðréttingar vegna breytinga á lögum og reglugerðum sem tóku gildi 1. janúar greiddar út. Greiðsluáætlun fyrir árið 2014 verður birt á Mínum síðum 17. janúar. Þeir sem óska eftir að fá greiðsluáætlun senda heim í pósti geta skráð kennitöluna sína á tr.is eða haft samband við Þjónustumiðstöð og umboð um land allt. Greiðsluáætlanir sem eru pantaðar á tr.is fyrir 12. janúar munu berast í pósti fyrir 1. febrúar.