Á þrettándanum, 6. janúar nk., verður þrettándabrenna við Seljalandsfoss. Kveikt verður í bálkestinum kl. 20:30. Eftir brennu og flugeldasýningu verður boðið upp á kaffi og konfekt í félagsheimilinu Heimalandi.

Hvetjum alla til að koma og kveðja jólin með látum á þessum fallega stað.