Rangárþing eystra auglýsir eftir starfskrafti í ræstingu á skrifstofu sveitarfélagsins að Austurvegi 4, Hvolsvelli.

Um framtíðarstarf er að ræða, 12 klst vinnu á viku og er vinnutími sveigjanlegur. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Upplýsingar gefur Margrét Jóna Ísólfsdóttir í síma 488 4200

Umsóknir og fyrirspurnir berist á netfangið margretjona@hvolsvollur.is

fyrir 27. maí 2021.

Margrét Jóna Ísólfsdóttir

Skrifstofu- og fjármálastjóri.