Knattspyrnufélag Rangæinga (KFR) og Sláturfélag Suðurlands hafa gert með sér samning sem hljóðar svo að SS mun styrkja KFR um 1.000.000 á ári næstu þrjú ár. Samningurinn felur í sér að merki SS verður á keppnistreyjum KFR í meistaraflokki og á öllum búningum yngri flokka. Í yngri flokkum er KFR í samstarfi við ÍBV svo merktir búningar verða nærri 400 talsins. Fánar og auglýsingaskilti frá SS verða á heimaleikjum KFR og mun knattspyrnuvöllurinn fá nafnið SS völlurinn.