Boðað er til opinna íbúafunda  miðvikudaginn 13. mars n.k. Fundirnir verða haldnir kl. 14.00  á Heimalandi og kl. 20.00 í Hvolsskóla á Hvolsvelli. Forsvarsmenn sveitarfélagsins sitja fyrir svörum um málefni sveitarfélagsins s.s. fræðslumál, helstu framkvæmdir og annað það sem íbúar hafa áhuga á að ræða. Haldnar verða stuttar framsögur og síðan verða frjálsar umræður.  Sami háttur verður hafður á, á báðum fundum. Þannig að fólk getur valið þann tíma sem hentar betur.

Sveitarstjórn Rangárþings eystra.