Ert þú menningarlæs?

Á þessu námskeiði verður rætt um ólíka menningarheima, fjallað um spurninguna hvað er menning og hvernig birtist hún okkur.  Megin áhersla námskeiðsins er á menningarlæsi, það er;  hvernig stöndum við okkur sem einstaklingar erlendis?  Hvað má gera og hvað má ekki gera eða segja?  Hverjar eru helstu gildrurnar sem einstaklingar og fyrirtæki falla í? Hvernig getum við öðlast meiri skilning á mótaðilanum, skilið hans menningu og aukið líkurnar á bættum árangri og skemmtilegri samskiptum? 

Skráning fer fram hjá Fræðslunetinu í síma 560 2030 eða á netfangið steinunnosk@fraedslunet.is .

·         Tími: Þriðjudagur 21. janúar kl. 20.00 - 22.30

·         Staður: Selfoss og fjarfundarbúnaður á Hvolsvelli, Vík og Kirkjubæjarklaustri

·         Verð: 1.500 kr

·         Leiðbeinandi: Þorgeir Pálsson