Menningarerfðir og Katla Jarðvangur

21. - 23. janúar verða haldnir fjórir umræðu- og kynningarfundir á suðurlandi um óáþreyfanlegan menningararf (menningarerfðir) og sáttmála UNESCO um verndun hans. Fundirnir á Hvolsvelli og á Klaustri verða í samstarfi við Brynju Davísdóttur framkvæmdarstjóra Kötlu Jarðvangs sem fer yfir stöðu jarðvangsins eftir úttekt matsmanna og innleiðingu í UNESCO Global Geoparks 2015.
Menningarerfðir eru til dæmis þekking og kunnátta sem tengist reykingu, söltun og súrsun matvæla, hestamennsku, sauðfjárbúskap, vefnaði, kveðskap, þjóðdansi, þjóðbúningum, útskurði og eggjatöku; að kæsa hákarl, smíða trébát og vinna með ull. 

Fundirnir eru í tengslum við verkefni á vegum menntamálaráðuneytinsins en markmiðið með því er að 
koma af stað umræðu um menningarerfðir
fá hugmyndir um menningarerfðir sem fólkinu í landinu finnst mikilvægt að vernda 
skrá félög/hópa/einstaklinga sem starfa á sviði menningarerfða 
kynna sáttmála UNESCO um verndun menningarerfða en lykilatriði hans er að við sem landið byggjum segjum til um hvað eru menningarerfðir okkar og hvernig best sé að vernda þær.
 
Fundatímar: 
Selfoss - í Fjölheimum, fimmtudaginn 21. janúar kl. 18:00
Hvolsvöllur - Hótel Hvolsvöllur, föstudaginn 22. janúar kl. 11:30 
Kirkjubæjarklaustur -  staðsetning óákveðin, föstudaginn 22. janúar kl. 20:00 
Höfn í Hornafirði - staðsetning óákveðin, laugardaginn 23. janúar kl. 14:00


Hlökkum til að sjá ykkur

Guðrún Ingimundardóttir og Brynja Davíðsdóttir