Systurnar Sigríður, María og Hulda, frá Mið-Mörk undir Eyjafjöllum, verða með ljósmyndasýningu á Þjóðminjasafninu frá 19. apríl til 2. maí nk. Sýningin er í samstarfi við List án landamæra en það er árleg listahátíð með áherslu á fjölbreytileika mannlífsins. Í grein á Vísir.is segir Sigríður að þær systur taki helst landslagsmyndir en eigi það nú til að taka annað myndefni fyrir líka. Systurnar hafa verið virkar í ljósmyndaklúbbnum 860+ hér í sveitarfélaginu. Við hvetjum alla til að leggja leið sína á Þjóðminjasafnið meðan á sýningunni stendur og óskum þeim systrum innilega til hamingju með sýninguna.