Rangárþing eystra leitar að áhugasömum starfsmanni í starf húsvarðar í félagsheimilinu Heimalandi, V-Eyjafjöllum.

Starf húsvarðar er hlutastarf og vinnutími óreglulegur sem fer eftir starfsemi hverju sinni.

Í starfinu felst m.a.:

  • Umsjón og eftirlit með húnæði og húsbúnaði.
  • Innkaup á ræstivörum og öðrum rekstrarvörum
  • Undirbúningur fyrir fundi og annan mannfagnað í samvinnu við þá sem panta húsið.
  • Þrif og smávægilegt viðhald
  • Eftirlit með notkun á raforku til lýsingar og upphitunar.

Nánari upplýsingar veitir umsjónarmaður fasteigna Rangárþings eystra, Ólafur Rúnarsson í síma 488-4200 eða á netfanginu olirunars@hvolsvollur.is

Umsóknarfrestur er til og með 4. desember 2023 og skulu umsóknir berast á netfangið olirunars@hvolsvollur.is Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.