Jólahátíðin okkar verður haldin á Hilton Reykjavík Nordica hótelinu 6. desember. Hátíðin er endurvakin eftir stutt hlé í covid en hún hefur verið haldin í rúmlega fjóra áratugi sem Jólahátíð fatlaðra.

Húsið opnar kl. 19 og klukkan 20 hefst ballið. Á meðal þeirra sem fram koma eru Herra Hnetusmjör, Sigga Beinteins, Bjartmar Guðlaugsson, Sigga Ózk og Bjarni Arason. Hljómsveit Rúnars Þórs leikur undir en útsetningar annast Þórir Úlfarsson. Þá munu þjóðþekktir menn og konur vinna við öryggisgæslu og aðstoða gesti á hátíðinni. Allir tónlistarmenn sem fram koma, aðstoðarfólk og þeir sem standa að hátíðinni gefa vinnu sínu í þágu fatlaðs fólks og höfum við einnig samið við bakhjarla hátíðarinnar til næstu fimm ára til að styðja við bakið á Jólahátíðinni okkar og tryggja hátíðina í sessi. Fyrirtækin eru Brim, Hilton Reykjavík Nordica, Góa, Vífilfell, Henson og Öryggismiðstöðin.

Hátíðin hefur verið mjög vel sótt í gegnum árin og hefur þessi dagur verið einn sá annasamasti hjá ferðaþjónustu fatlaðra. Á hátíðinni í ár verður André Bachmann, upphafsmaður hátíðarinnar, heiðraður en hann hefur nú rétt nýjum hópi keflið.

Undirbúningsnefndin.

Ásmundur Friðriksson

Andri Steinn Hilmarsson

Rúnar Rúnarsson