Sunnlendingar voru 19.549 þann 1. janúar 2012 og hafði fækkað um 0,6%, eða 111 frá sama tíma árið áður. Mesta tölulega fækkunin er í Árborg þar sem fækkaði um 44 íbúa.

Hagstofan hefur nú birt íbúatölur í sveitarfélögum þann 1. janúar sl. 

Sunnlendingar voru 19.660 í fyrra en nú eru þeir 19.549 ef frá eru talið sveitarfélögin Hornafjörður og Vestmannaeyjar. 

Íbúum fækkar í átta af sveitarfélögunum þrettán, mest í Bláskógabyggð, um 29 eða 3,1%. Íbúum Hrunamannahrepps fækkar um 2,6% og íbúum Mýrdalshrepps um 2,1%.

Mesta tölulega fjölgunin er í Grímsnes- og Grafningshreppi þar sem fjölgar um 16 íbúa eða 4,0%. Mesta prósentufjölgunin er í Ásahreppi eins og svo oft áður en þar fjölgar um tíu íbúa, eða 5,2%, og eru íbúar hreppsins nú 204. 

Í Rangárvallasýslu fækkar íbúum um nítján og eru íbúar þar nú 3.245. Fækkunin á sér öll stað í Rangárþingi ytra en íbúatala Rangárþings eystra stendur í stað.

Vestur-Skaftfellingum fækkar um þrettán. Í Mýrdalshreppi fækkar um tíu íbúa en þrjá í Skaftárhreppi og búa nú 902 íbúar í sýslunni.

Þetta kemur m.a. fram í frétt á sunnlenska.is 


Mannfjöldi í Rangárþingi eystra 1. janúar 2011 og 2012. 

Heimilid: Hagstofan

   2011 2012 
 Alls Karlar  Konur  Alls  Karlar  Konur 
Rangárþing eystra   1.741 902 839  1.741  906   835 
860 - Þéttbýlið 894  445   449   910  458   452 
861 - Dreifbýlið 868 467  401 854 458  396

Mynd: frá Kjötsúpuhátíðinni 2011 - froskalappa fótboltakeppnin