,,Hafmeyjan", höggverk eftir Nínu Sæmundsson, er komin í Njálusetrið á Hvolsvelli. Er hún þar í tilefni 120 ára afmælishátíðar Nínu, sem haldin verður um helgina, sunnudaginn 26. ágúst nánar tiltekið. Dagskrá hátíðarinnar má sjá hér.

 

Jónína Sæmundsdóttir, eða Nína Sæmundsson eins og hún kallaði sig, fæddist að Nikulásarhúsum, næst við bæinn Hlíðarenda í Fljótshlíð, árið 1892 og var yngst 15 systkina. Foreldrar hennar voru Sæmundur Guðmundsson og Þórunn Gunnlaugsdóttir, ábúendur í Nikulásarhúsum.

 

Nína lést árið 1965 og er minningarreitur um hana rétt innan við Hlíðarenda.

Nína er helst þekkt sem myndhöggvari og lærði hún á Konunglegu listaakademíunni í Kaupmannahöfn og á Ítalíu. Árið 1926 fór Nína til Bandaríkjanna og bjó þar að mestu síðan en hélt ætíð íslenskum ríkisborgararétti sínum.

Hafmeyjan, sem hér sést, er líklega frá árinu 1944 og er talin vera fyrirmynd þeirrar sem komið var fyrir í Tjörninni í Reykjavík í ágúst 1959 og svo sprengd í loft upp á nýársnótt 1960.

Mörg önnur þekkt verk eru til eftir Nínu svo sem „Móðurást“ sem er við Lækjargötu í Reykjavík. Það mun vera fyrsta sjálfstæða listaverkið sem sett var upp á opinberum vettvangi hér á landi, án þess að vera minnismerki. Verkið var unnið erlendis og hlaut Nína fyrstu verðlaun fyrir það í keppni sem rösklega 1000 listamenn tóku þátt í.

Annað verk Nínu, „Afrekshugur“, höggmynd af vængjaðri veru, er yfir anddyri Waldorf Astoria hótelsins í New York borg.  Samkeppni fór fram árið 1931 um gerð listaverks fyrir hótelið og bar Nína þar sigur úr býtum en þátttakendur í keppninni voru um 400. 

Enn fleiri verk eftir Nínu Sæmundsson er að finna bæði erlendis og hér á landi, m.a. í Listasafni Íslands, að Eiríksstöðum í Haukadal vestur og við Nonnasafnið á Akureyri.