Guðlaug Ósk Svansdóttir hefur verið ráðin tímabundið í starf markaðs- og kynningarfulltrúa Rangárþings eystra og mun leysa Árný Láru Karvelsdóttur af sem fer í fæðingarorlof. Alls bárust 8 umsóknir um starfið og var ráðgjafafyrirtækið Intellecta fengið til að meta alla umsækjendur og var Guðlaug Ósk metin hæfust í starfið.

Guðlaug Ósk er með B.sc. gráðu í ferðamálafræði og M.sc gráðu í markaðsfræðum og alþjóðaviðskiptum og mun hún hefja störf mánudaginn 16. febrúar nk.