Á að fara að leggjast í framkvæmdir? Þá er gott að hafa þessa punkta á bak við eyrað en þeir eru fengnir úr byggingareglugerð nr. 112/2012, sér í lagi 2.3.5. gr., 2.3.7. gr. og 7.2.2. gr.

  1. Pallar eiga ekki að vera hærri en 0,3 m frá yfirborði jarðvegs sem fyrir var og ekki nær aðliggjandi lóð en 1,0 m.
  2. Skjólveggir og girðingar á lóð sem eru allt að 1,8 m á hæð séu ekki nær en 1,8 m frá lóðamörkum, nema undirritun samþykkis aðliggjandi lóðarhafa liggi fyrir hjá leyfisveitanda.
  3. Smáhýsi á lóð utan byggingarreits skal uppfylla eftirfarandi kröfur:
    • Stærð að hámarki 15 m².
    • Fjarlægð milli annarra húsa a.m.k. 3 m.
    • Ef staðsetning er innan 3 m frá lóðarmörkum skulu þeir veggir vera án glugga og hurða sem að snúa að lóðarmörkum. Skriflegt samþykki aðliggjandi lóðarhafa skal lagt fram hjá byggingarfulltrúa.
    • Mesta hæð þaks á smáhýsi skal ekki fara yfir 2,5 m mælt frá yfirborði jarðvegs.

2.3.7. gr. Skyldur eiganda mannvirkis vegna framkvæmda sem undanþegnar eru byggingarleyfi.

,,Eigandi sem ræðst í framkvæmdir sem falla undir 2.3.5. gr. ber ábyrgð á að ekki skapist hætta fyrir fólk og eignir vegna mannvirkisins og að virt séu öll viðeigandi ákvæði þessarar reglugerðar. Hann skal einnig gæta þess að fyrirhugaðar framkvæmdir séu í samræmi við gildandi skipulagsáætlanir. Eigandi mannvirkis sem undanþegið er byggingarleyfi ber ábyrgð á að ekki sé gengið á rétt nágranna og að virt séu ákvæði laga um fjöleignarhús“.

Hávöxnum trjátegundum má ekki planta nær aðliggjandi lóð en 4,0 m.

Tré og runnar sem plantað eru á lóðarmörkum mega ekki vera hærri en 1,80 m nema með samþykki aðliggjandi lóðarhafa.

Áður en byrjað er á útplöntun skal taka tillit til skuggavarps.

Mynd: hms.is

Umhverfis- og garðyrkjustjóri Rangárþings eystra