Á hverju hausti arka nemendur og starfsmenn í Hvolsskóla á fjöll í héraði. Haustið í ár er engin undantekning á því og er nú farið í áttunda skiptið á tindana. Gangan gengur undir nafninu Tíu tinda ganga og er markmiðið að hver nemendi sem er í skólanum í tíu ár hafi farið á tíu tinda í héraði við lok grunnskólagöngu.

Í ár fer 1. bekkur venju samkvæmt á Stóru-Dímon. 2.-4. bekkur gengur yfir Vatnsdalsfjall, 5.-7. bekkur upp á Þórólfsfell og 8.-10. bekkur á Þríhyrning.

Það er erfitt að ákveða daginn með fyrirvara þessi misserin þar sem veðurspá breytist ört. Eins og staðan er núna er fyrsti mögulegi uppgöngudagur á miðvikudaginn. Því er stefnt á þann dag. 

Foreldrar og aðrir velunnarar eru hvattir til að slást í för með nemendum og starfsfólki þegar af ferðinni verður.