Um langt skeið hafa verslunarmál verið í brennidepli í Rangárþingi eystra. Mjög margt hefur verið reynt til þess að fá lágverðsverslun inná svæðið, bæði af þeirri sveitarstjórn sem nú starfar og einnig af fyrri sveitarstjórnum.  Það má segja að við kaup sveitarfélagsins á verslunarbyggingunum, sem einu sinni hýstu Kaupfélag Rangæinga, hafi aftur komist hreyfing á þau mál að nýju á Hvolsvelli. Við kaupin náði sveitarfélagið einnig yfirráðarétti yfir miðbæ kauptúnsins, u.þ.b. 2,5 hekturum lands sem hefur gríðarlega mikið að segja þegar horft er til framtíðar. Næstu verkefni okkar eru m.a. að vinna að endurnýjun nýs deiliskipulags í miðbæ Hvolsvallar og vinna að lagfæringum hússins sem mun rúma skrifstofur sveitarfélagsins og skipulagsfulltrúa.  Fyrirtækið Kaupás leigir húsnæði undir starfsemi sína á Hvolsvelli og hefur sá leigusamningur verið framlengdur um eitt ár eða til ársloka 2014. Fleiri aðilar leiga skrifstofur í húsinu. Forsvarsmenn sveitarfélagsins hafa verið  í sambandi við þrjú fyrirtæki sem tengjast lágverðsverslunum, en þau fyrirtæki eru:  Kaupfélag Suðurnesja sem reka m.a. Nettóbúðirnar, Kaupás sem rekur m.a. Krónubúðirnar og Haga sem reka Bónusbúðirnar. Óstofnað verslunarfélag og Kaupás hafa sótt um lóðir við Austurveg til verslunarbygginga og Hagar hafa tekið sér umhugsunarfrest fram til vors. Hvað sem öðru líður er hreyfing á þessum málum þó að málið sé enn ekki í höfn.  Rekstraraðilar lágverðsverslana setja sér ákveðin viðmið um fjölda íbúa á bak við hverja lágverðsverslun sem þeir reka. Við höfum bent á hve miklar breytingar hafa orðið hér á ferðamannastraumi, aukningu umferðar skv. talningu Vegagerðarinnar, Landeyjahöfn hefur hér einnig mikið að segja. Hvað sem öðru líður eru við sem störfum í  sveitarstjórnin samtaka um að reyna allt sem í okkar valdi stendur til þess að ná lágverðsverslun hingað. Við trúum því að það sé ekki spurning um hvort slík verslun verður opnuð hér, heldur hvenær. Víst er að við erum sannfærð um að hér sé um gott viðskiptatækifæri að ræða. 
Ísólfur Gylfi Pálmason,
Sveitarstjóri.