Hlíðarvegur 14 á Hvolsvelli, sem nú hýsir veitingahús, Njálusýningu og Kaupfélagssafn, er til sölu.

Eignin samanstendur af tveimur byggingum annarsvegar 309.1 fm byggt árið 1974 og hinsvegar 873.2 fm byggt árið 1985.
Eldra húsið er steypt með hefðbundnu þaki og bárujárni, hitt er steypt með yleiningum á þaki. 
Komið er að viðhaldi á húsnæðinu.

Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill fasteignasalan því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Óskað er eftir tilboðum í eignina

Allar nánari upplýsingar veitir Ágúst Kristjánsson lgf hjá Fannberg Fasteignasölu 4875028 tölvupóstur agust@fannberg.is