Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru auglýstar eftirfarandi tillögur að deiliskipulagi í Rangárþingi eystra.

Skálabrekka – Deiliskipulagstillaga

Um er að ræða 3,74 ha spildu þar sem m.a. verður heimilt að byggja tveggja hæða íbúðarhús, með hámarkshæð allt að 8,5m frá botnplötu.

Hólmaflöt – Deiliskipulagstillaga

Um er að ræða nýtt deiliskipulag á lóðinni Hólmaflöt. Á byggingarreit B1 er gert ráð fyrir íbúðarhúsi, allt að 140 m2 og á byggingarreit B2 er gert ráð fyrir tveimur 30 m2 gestahúsum.

Ofangreindar deiliskipulagstillögur er hægt að skoða á heimasíðu Rangárþings eystra, www.hvolsvollur.is og á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa frá 6. apríl nk. Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemd við tillögurnar, og er frestur til að skila inn athugasemdum til 18. maí nk. Athugasemdum skal skila skriflega á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa Rangárþings eystra, Austurvegi 4, 860 Hvolsvelli.

F.h. Rangárþings eystra

Guðmundur Úlfar Gíslason

Skipulags- og byggingarfulltrúi