tt aðalskipulag Rangárþings eystra undirritað á 200. fundi sveitarstjórnar

Á 200. fundi sveitarstjórnar Rangárþings eystra var nýtt aðalskipulag sveitarfélagsins undirritað. Vinnan við heildar upptöku á aðalskipulaginu hefur tekið nokkurn tíma en ýmsar áherslubreytingar eru í nýju aðalskipulagi. Má þar helst nefna flokkun landbúnaðarlands og verndun lands,  nýr þéttbýlisstaður, þróun byggðar og áfangastaðir Kötlu jarðvangs eru nú sérmerktir. Fundurinn var haldinn þann 15. maí 2015 í félagsheimilinu Goðalandi í Fljótshlíð.