Heilsu-, íþrótta- og æskulýðsnefnd

15. fundur  í  Heilsu-, íþrótta-  og æskulýðsnefnd Rangárþings eystra verður haldinn í Pálsstofu, Félagsheimilinu Hvoli, Austurvegi 8, Hvolsvelli, miðvikudaginn 5. nóvember 2014 kl. 16.30


Mætt voru: Benedikt, Jónas, Lárus, Bjarki, Bóel og Ólafur.

1. Fimmtudagsfjör í íþróttamiðstöðinni
Fundarmenn voru sammála um að hugmyndin væri góð. Gott að nýta mannvirkin vel. Ýmsar hugmyndir eins og: Sniðugt að prufa að hafa opið eftir kl: 21:00, kannski að hafa þetta einu sinni í mánuði, minna fólk á útivistarreglurnar.

2. Staðan í málaflokknum – Ólafur Örn Oddsson. 
Óli er að vinna að forvarnaráætlun í samvinnu við litla forvarnarhóp.
 
3. Sala á gosi og sælgæti í íþróttamiðstöðinni. Umræður um hvað eigi að vera til sölu í íþróttamiðstöðinni og hvað væri hægt að hafa í staðinn fyrir sælgæti. Skyr, próteinstangir nefnt og kannski ís á sumrin. Nefndin var sammála um að sælgæti og gos skyldi ekki selt. Spurning með ís á sumrin. 
Bensi ætlar að tala við Kela forstöðumann íþróttamiðstöðvarinnar varðandi banni á gosi og sælgæti í íþróttamiðstöð.


4. Ungt fólk 2013 – umræður  http://www.rannsoknir.is/rg/skyrslur/
Spjall um hvað væri hægt að hafa í boði fyrir ungmenni eftir grunnskólaaldurinn í íþróttahúsinu, vísað til ungmennaráðs. 

5. Folf völlur- umræður
Óli ætlar að skoða nýtingu og möguleika á svæðum og koma með hugmyndir að staðsetningu. Best væri að hafa þetta utan alfaraleiðar. 


6. Hjólabrettaaðstaða.
Skoða það áfram með tilliti til staðsetningar og kostnaðar.

7. Heilsuvika framtíð – umræður (frestað frá síðasta fundi)
Umræður um að hafa heilsumánuð sem byrjar á heilsu¬viku. Einnig væri gott að fá fyrirlestur jafnt fyrir allt allt árið.  

8. Hjóla- gönguleiðir í sveitafélaginu.
Málið er ennþá í skoðun.

9. Íþróttamaður ársins – umræður (frestað)

10. Erindisbréf ungmennaráðs – sent til ungmennaráðs. 

11. Fundargerð Ungmennaráðs frá 23. okt. – samþykkt. Ungmennaráð er beðið um að koma með hugmynd að því hvað þau vilji gera í staðinn fyrir áramótaball fyrir 16-18 ára aldurinn.

12. Afgreiðsla sveitastjórnar v/launa ungmennaráðs. Það er í skoðun.

Önnur mál: 
Sparkvöllurinn – það vantar net og spurning að fá betri hönnun á mörkunum.
Grasvöllurinn – mörk eru að fjúka. Það þarf að ganga frá þeim. Á hvers ábyrgð er íþróttasvæðið? Óli gengur í málið.


Fundi slitið 18:30
Ólafur Örn Oddsson, ritaði fundargerð.