120. fundur Byggðarráðs Rangárþings eystra  haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins að Hlíðarvegi 16, Hvolsvelli, fimmtudaginn 18. apríl 2013 kl. 10:15

Mætt:  Ísólfur Gylfi Pálmason, sveitarstjóri, varamaður Lilju Einarsdóttur, Kristín Þórðardóttir, Guðmundur Ólafsson, áheyrnarfulltrúi, Einar Sveinbjörnsson, löggiltur endurkoðandi, Ágúst Ingi Ólafsson, skrifstofustjóri sem ritaði fundargerð og  Guðlaug Ósk Svansdóttir, formaður byggðarráðs sem setti fund og stjórnaði honum.

Hún leitaði eftir athugasemdum við boðun fundarins en engar komu fram.

Dagskrá:

1. Ársreikningur Rangárþings eystra 2012.

 Einar Sveinbjörnsson, endurskoðandi KPMG fór   
 yfir reikninginn og skýrði hann.  Ársreikningurinn áritaður af byggðarráði   
 og honum vísað til umræðu og afgreiðslu í sveitarstjórn

Fleira ekki gert og fundi slitið kl.10:55

Guðlaug Ósk Svansdóttir
Kristín Þórðardóttir
Ísólfur Gylfi Pálmason
Guðmundur Ólafsson