Sigríður Harpa nýr byggðaþróunarfulltrúi Rangárþings
Sigríður Harpa Jónsdóttir hefur verið ráðin byggðaþróunarfulltrúi Rangárþings og er þegar tekin til starfa. Hún tekur við starfinu af Stefáni Friðriki Friðrikssyni, sem hefur nú tekið við stöðu verkefnastjóra miðlunar hjá SASS og Orkídeu. Harpa, eins og hún er jafnan kölluð, er fædd og uppalin á Hellu en er í dag búsett hér á Hvolsvelli. Sem byggðaþróunarfulltrúi mun hún sinna byggðaþróunarverkefnum fyrir bæði Rangárþing eystra og Rangárþing ytra.
16.03.2026
Fréttir