Sumarstörf í Vinnuskóla Rangárþing eystra

Viltu eiga skemmtilegt og gagnlegt sumar?

Rangárþing eystra auglýsir eftir Verkstjóra og Flokkstjórum til starfa við Vinnuskóla Rangárþings eystra sumarið 2026. Umsóknareyðublað á hvolsvollur.is

Vinnuskólinn er mikilvægur vettvangur fyrir ungmenni til að kynnast vinnulífi, læra góð vinnubrögð og taka þátt í uppbyggilegum og fjölbreyttum verkefnum í sveitarfélaginu. Í vinnuskólanum er unnið að umhirðu og fegrun umhverfisins, almennum garðyrkjuverkefnum, hreinsun og öðrum tilfallandi verkefnum sem stuðla að snyrtilegu og aðlaðandi nærumhverfi.

Lögð er áhersla á að skapa jákvætt, öruggt og fræðandi starfsumhverfi þar sem ungmenni fá leiðsögn, þjálfun og tækifæri til að efla ábyrgð, samvinnu og virðingu í starfi.

Vinnutímabil Vinnuskólans er frá 1. júní til 17. júlí fyrir nemendur í 7.–10. bekk og aftur frá 5. ágúst til 14. ágúst fyrir nemendur í 8.–10. bekk. Nemendur í 7. bekk starfa í 3 klukkustundir á dag, fyrir eða eftir hádegi, en nemendur í 8.–10. bekk starfa í 6 klukkustundir á dag.

Verkstjóri Vinnuskóla Rangárþings eystra

Verkstjóri hefur yfirumsjón með daglegum rekstri vinnuskólans og ber ábyrgð á skipulagi, samræmingu og utanumhaldi starfsins. Verkstjóri vinnur náið með garðyrkjustjóra og er tengiliður milli vinnuskólans, flokkstjóra og stjórnenda.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umsjón með daglegum rekstri vinnuskólans.
  • Skipuleggja verkefni, verkaskiptingu og framkvæmd starfsins yfir sumarið.
  • Stýra og samræma störf flokkstjóra og veita þeim stuðning og leiðsögn.
  • Hafa yfirsýn yfir verkefnastöðu, mætingar og tímaskráningar.
  • Sjá um samskipti og upplýsingaflæði milli vinnuskóla, garðyrkjustjóra og annarra sem koma að starfinu.
  • Fylgja eftir því að vinnubrögð, öryggi og umgengni séu í samræmi við markmið vinnuskólans.
  • Taka þátt í starfi vinnuskólans og vera fyrirmynd í samskiptum, skipulagi og vinnusemi.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Æskilegt er að umsækjandi hafi náð 20 ára aldri.
  • Reynsla af stjórnun, verkstjórn eða umsjón með hópum er æskileg.
  • Reynsla af starfi með unglingum er kostur.
  • Góð samskiptafærni, skipulagshæfni og ábyrgð í starfi.
  • Sjálfstæð og öguð vinnubrögð ásamt hæfni til að hafa yfirsýn og taka ákvarðanir.
  • Áhugi á umhverfismálum og reynsla af garðyrkju- eða umhirðutengdum störfum er kostur.
  • Gilt bílpróf skilyrði.

Flokkstjóri Vinnuskóla Rangárþings eystra

Flokkstjóri starfar undir stjórn verkstjóra og hefur umsjón með hópi ungmenna í daglegum verkefnum vinnuskólans. Flokkstjóri er leiðbeinandi og fyrirmynd sem styður ungmenni í starfi, eflir liðsheild og sér til þess að verkefni gangi vel.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Veita ungmennum leiðsögn í daglegum störfum vinnuskólans.
  • Stýra vinnuhópi og fylgja eftir verkaskiptingu samkvæmt skipulagi verkstjóra.
  • Taka þátt í verkefnum með hópnum og kenna góð vinnubrögð, umgengni og öryggi.
  • Efla jákvæð samskipti, ábyrgð og samvinnu meðal ungmenna.
  • Fylgjast með mætingu og ástundun og skila upplýsingum til verkstjóra.
  • Taka þátt í fræðslu og öðrum uppeldis- og hópeflisverkefnum innan vinnuskólans.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Æskilegt er að umsækjandi hafi náð 18 ára aldri.
  • Áhugi á að starfa með unglingum og vilji til að takast á við fjölbreytt verkefni.
  • Góð samskiptafærni, jákvætt viðmót og skipulagshæfni.
  • Umsækjandi þarf að vera góð fyrirmynd, stundvís og samviskusamur.
  • Reynsla af störfum með unglingum er kostur.
  • Reynsla af garðyrkju- og umhirðutengdum störfum er kostur.
  • Gilt bílpróf er æskilegt.

Nánari upplýsingar og umsóknarfrestur

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.

Gerð er krafa um að umsækjendur séu hæfir til að starfa með ungmennum og áskilur sveitarfélagið sér rétt til að óska eftir nauðsynlegum gögnum við ráðningu.

Umsóknarfrestur er til og með 27. mars 2026.

Áhugasamir einstaklingar eru hvattir til að sækja um: Umsóknareyðublað á hvolsvollur.is

Nánari upplýsingar veitir Magnús Þór Einarsson, garðyrkjustjóri, magnusthor@hvolsvollur.is