- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
- Fréttir

Sigríður Harpa Jónsdóttir hefur verið ráðin byggðaþróunarfulltrúi Rangárþings og er þegar tekin til starfa. Hún tekur við starfinu af Stefáni Friðriki Friðrikssyni, sem hefur nú tekið við stöðu verkefnastjóra miðlunar hjá SASS og Orkídeu. Harpa, eins og hún er jafnan kölluð, er fædd og uppalin á Hellu en er í dag búsett hér á Hvolsvelli. Sem byggðaþróunarfulltrúi mun hún sinna byggðaþróunarverkefnum fyrir bæði Rangárþing eystra og Rangárþing ytra.
Í starfi sínu veitir Harpa ráðgjöf og handleiðslu á sviði atvinnu- og byggðaþróunar, vinnur að upplýsingaöflun og svæðisbundnum verkefnum, auk þess að koma að ferðatengdum málum og fjölmenningu. Þessi verkefni eru unnin í samráði við bæði sveitarfélögin og Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS). Mikil áhersla er lögð á samráð við íbúa svo raddir almennings fái að heyrast og séu teknar með í reikninginn við áherslu- og stefnumótun á svæðinu okkar.
Harpa verður öllu jafna með starfsstöð á skrifstofu Rangárþings eystra á Hvolsvelli frá þriðjudegi til föstudags. Á mánudögum mun hún hins vegar vera á skrifstofu Rangárþings ytra í Miðjunni á Hellu. Fólk er mjög hvatt til þess að hafa samband og koma á framfæri hugmyndum eða erindum við Hörpu á netföngin sigridurh@hvolsvollur.is eða harpa@ry.is.
Við bjóðum Hörpu velkomna til starfa og óskum henni velfarnaðar.