Uppspretta Suðurlands samþætt í einn öflugan viðburðardag föstudaginn 6. nóvember
Breyting hefur verið gerð á fyrirkomulagi Uppsprettu Suðurlands sem fram fer í HorseDay höllinni í Ölfusi. Í stað þess að dreifa dagskránni yfir tvo daga verður öll hátíðin sameinuð á föstudaginn 6. nóvember og atvinnulífssýningin framlengd til klukkan 18:00. Dagskrá laugardagsins 7. nóvember fellur því niður.
22.10.2026
Fréttir