- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
- Fréttir
Hrossaræktarbúin Hemla II og Skálakot í Rangárþingi eystra eru á meðal þeirra þrettán búa sem fagráð í hrossarækt hefur tilnefnt sem ræktunarbú ársins 2026. Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins (RML) birti nýverið lista yfir búin.
Að ræktunarstarfinu í Hemlu II standa Lovísa Herborg Ragnarsdóttir, Vignir Siggeirsson og fjölskylda. Í Skálakoti standa Guðmundur J. Viðarsson, Jóhanna S. Þórhallsdóttir og fjölskylda að ræktuninni. Tilnefnd bú fá afhenta viðurkenningu á ráðstefnunni Hrossarækt 2026.
Samkeppnin í íslenskri hrossarækt er hörð og það er góður árangur hjá búunum að komast á þennan lista. Sjö af þeim þrettán búum sem hljóta tilnefningu í ár eru í Rangárvallasýslu. Auk Hemlu II og Skálakots eru það búin Efsta-Sel, Fet, Flagbjarnarholt, Margrétarhof og Sumarliðabær 2.
Fleiri góðar fréttir hafa borist af hestafólki á svæðinu í október. Landsliðshópar Íslands í hestaíþróttum fyrir starfsárið 2026 til 2027 voru kynntir á dögunum en stóra verkefni landsliðsins á næsta ári er heimsmeistaramót íslenska hestsins í Rieden í Þýskalandi.
Félagar í hestamannafélaginu Geysi eiga þar marga fulltrúa. Í A-landsliðshópnum eru Geysismeðlimirnir Jón Ársæll Bergmann og Kristján Árni Birgisson, sem báðir eru titilverjendur, ásamt þeim Ásmundi Erni Snorrasyni, Elvari Þormarssyni, Jóhönnu Margréti Snorradóttur, Sigurði Sigurðarsyni og Þorgeiri Ólafssyni. Þá voru þau Dagur Sigurðarson, Eik Elvarsdóttir og Elísabet Líf Sigvaldadóttir úr Geysi valin í U21-landsliðshóp Íslands.
Rangárþing eystra óskar ræktendum í Hemlu II og Skálakoti, sem og öðrum tilnefndum ræktendum og landsliðsfólki í héraðinu, til hamingju með þennan góða árangur.
Nánar má lesa um tilnefningarnar á vef RML og á vef Eiðfaxa. Á vef Eiðfaxa má einnig finna nánari upplýsingar um skipan A-landsliðshóps og U21-landsliðshóps Íslands.