- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
- Fréttir
Sveitarfélagið Rangárþing eystra vill minna íbúa á samstarfssamning sem er í gildi við Samtökin '78. Einn liður í þeim samningi tryggir öllum íbúum sveitarfélagsins aðgang að persónulegri ráðgjöf hjá samtökunum að kostnaðarlausu.
Ráðgjöfin stendur öllum til boða sem á þurfa að halda. Þetta á jafnt við um hinsegin fólk, aðstandendur og aðra sem vilja fræðast eða leita sér stuðnings varðandi kynhneigð, kynvitund, kyntjáningu og kyneinkenni. Það er mikilvægt að geta leitað til fagaðila þegar spurningar vakna eða þörf er á stuðningi og er þessi þjónusta góð viðbót við velferðarþjónustu í sveitarfélaginu.
Samningurinn við Samtökin '78 er til þriggja ára, nánar tiltekið fyrir árin 2024 til 2026, og er gerður í samstarfi við BS Odda. Auk ráðgjafarinnar byggir samningurinn á markvissri fræðslu fyrir bæði nemendur og starfsfólk í grunnskólum og leikskólum, ásamt fræðslu fyrir stjórnendur sveitarfélaganna. Markmiðið með samstarfinu er að auka þekkingu á hinsegin málefnum og tryggja að starfsumhverfi og þjónusta byggi á jafnrétti og mannréttindum.
Við hvetjum íbúa sem telja sig eða sína hafa gagn af ráðgjöfinni til að nýta sér þetta úrræði. Hægt er að hafa samband beint við Samtökin '78 til að fá frekari upplýsingar og bóka tíma.