- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
- Fréttir
Miðvikudaginn 14. október eru liðin 70 ár frá því að fyrsti fundur stjórnar Héraðsbókasafns Rangæinga var haldinn. Í tilefni af þessum tímamótum verður slegið til afmælisveislu á safninu á milli klukkan 13:00 og 18:00, þar sem allir eru hjartanlega velkomnir.
Héraðsbókasafn Rangæinga þjónar mikilvægu hlutverki í samfélaginu okkar, bæði sem almenningsbókasafn fyrir íbúa og sem skólabókasafn Hvolsskóla. Afmælisdagurinn verður fjölbreyttur og skemmtilegur fyrir gesti á öllum aldri:
Kl. 13:00 – Sögustund: Edda Björg Jónsdóttir les úr bók sinni „Mýsla og kartöflurnar“.
Tónlist: Nemendur úr Tónlistarskóla Rangæinga koma fram og flytja tónlistaratriði.
Bókamerkjasýning: Í gegnum árin hafa alls kyns bókamerki og miðar fundist í bókasafnsbókum. Gestum gefst nú tækifæri til að skoða þennan skemmtilega og fjölbreytta efnivið og kannski finna týnda bókamerkið sitt.
Ljósmyndir: Sýning á ljósmyndum verður varpað á tjald allan daginn.
Veitingar: Boðið verður upp á kaffi og afmælisköku.
Starfsfólk safnsins hlakkar til að fagna þessum áfanga með íbúum og gestum á bókasafninu okkar allra.
Viðburð á facebook má nálgast hér: https://fb.me/e/bzCqereLu